Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Aldrei aftur Hírósíma, formúlubíllinn Fenrir, Ódysseifar Nolans og James Joyce og Bogomil Font kveður niður áhyggjur

Hópur háskólanema við Háskóla Íslands er nú staddur í Barcelona á Spáni og undirbýr þátttöku í stúdentakeppninni í Formúla 1 kappakstri. Þau eru mætt þangað með sinn sérhannaða kappakstursbíl sem heitir Fenrir og keppa við lið frá háskólum víða úr Evrópu. Verkefnið hefur staðið yfir í nokkur ár og hafa um 60 nemendur við Háskóla Íslands komið að þróun og smíði Fenris. Við heyrðum af þessu ævintýri frá Elínu Eddu Jóhannsdóttur.

Bíómyndina um Ódysseif sáu rúmlega átta þúsund manns um frumsýningarhelgina í endaðan júlí og ætla má að nokkur þúsund hafi mögulega bæst við þann fjölda sem hefur lagt sína leið í kvikmyndahúsin hér á íslandi síðustu vikurnar. Stórmyndin sem er í leikstjórn Christopers Nolans er er byggð á hinum fornu kvæðum Hómers, þá aðallega Ódysseifskviðu. Fjölmargir hafa rýnt og ritað um handrit myndarinnar og myndina sjálfa, einn þeirra er Eiríkur Örn Norðdahl sem er líka nýkominn af veglegri dagskrá í Dyflinni sem helguð er höfundinum James Joyce og þá aðallega bók hans Ódysseifi sem sækir einnig í Hómer. Eiríkur sagði okkur frá kynnum sínum af þessum tveimur meistaraverkum.

Frá árinu 1985 hafa íslenskir friðarsinnar minnst atburðanna í japönsku borgunum Hírósíma og Nagasakí árið 1945 með kertafleytingu, þar sem fórnarlambanna er minnst og áhersla lögð á kröfuna um heim án kjarnorkuvopna. Fyrsta fleytingin var á Reykjavíkurtjörn en í gegnum tíðina hafa fleiri staðir bæst í hópinn. Nú í ár verður fleytt á sex stöðum. Stefán Pálsson sagnfræðingur og friðarsinni kom til okkar og rifjaði upp þessar hryllilegu kjarnorkuárásir á Japan og segir okkur frá viðburðunum í kvöld.

Bogomil Font og Greiningardeildin senda frá sér glænýja plötu á morgun sem ber heitið Haf þú ekki áhyggjur af því. Við hér á Rás 2 könnumst vitanlega við að hafa heyrt ljómandi fína smelli frá Bogomil síðustu misserin en nú er loks komin heil plata og er hans fyrsta plata í tuttugu ár. Sigtryggur Baldursson er auðvitað einn helsti samverkamaður Bogomils frá því að hann gaf út plötuna Ekki þessi leiðindi árið 1993 en nú hafa þeir Bragi Valdimar Skúlason og Guðmundur Kristinn Jónsson, Kiddi hjálmur, bæst í traustan samstarfshóp Bogomils. Við fengum þá Bogomil Font og Braga Valdimar til okkar í lok þáttar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,