• 00:13:22Víkingar taka yfir Hafnarfjörð
  • 00:27:43Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf
  • 00:49:30Jakob Birgis flakkar um landið

Morgunútvarpið

Víkingar taka yfir Hafnarfjörð og útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf

Rúmlega 200 víkingar eru mættir á Víkingahátíðina í Hafnarfirði, sem hófst í vikunni og sendur yfir næstu daga. Þar getur almenningur spreytt sig á bogfimi, axarkasti, spjótkasti og öðrum fornum gjörningum. Ungviðið getur gengið í víkingaskóla barnanna en svo eru leikjasýningar, sögustund og hirðfífl sem leikur listir sínar. Jökull Tandri Ámundason, jarl Rimmugýgjar sem er elsta víkingafélagið hér á landi, mætti í fullum herklæðum og sagði okkur frá þessu.

Karen María Jónsdóttir fyrrverandi námsmaður erlendis, núverandi maki innflytjanda, dóttir farandverkamanns, ættingi vesturfara og verðandi ferðamaður erlendis. Hún birti áhugaverða grein á Vísi á dögunum þar sem mátti finna hvatningu til Íslendinga líta í eigin barm þegar kemur umræðunni um útlendinga á Íslandi. Hún kom til okkar.

Okkar maður Jakob Birgis flakkar um landið í sumar og flytur nýtt uppistand í bland við sígilda brandara. Hann kemur meðal annars við á Hvammstanga, Sauðárkróki og í Bíldudal. En hvað rekur menn í leggja upp í svona ferðalag. Jakob kom til okkar.

Birt

18. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,