• 00:11:25Komdu nú að kveðast á
  • 00:25:51Svik við ungu kynslóðina
  • 00:46:55Boxarinn sem tapar aldrei
  • 01:07:40Fréttir vikunnar

Morgunútvarpið

Svik við ungu kynslóðina,hagyrðingar,Sigmundur Davíð,Halla Hrund og Kolbeinn boxari

Öllu verður til tjaldað á hagyrðingakvöldi í Klúbbnum í Iðnó í kvöld þegar landskunnir hagyrðingar stíga á stokk og kasta fram stökum um það sem efst er á baugi, bæði menn og málefni. Þá mun hin einstæða kvæðamannasveit Tríó Zimsen troða upp. Fátítt er efnt til slíks viðburðar í Reykjavík - og er það einsdæmi á Listahátíð. Pétur Blöndal og séra Hjálmar Jónsson komu og sögðu frá þessu.

Sigurður Sigurðsson er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um betra samfélag. Hann birti pistil á dögunum undir fyrirsögninni „Kerfislægt of­beldi og pólitísk svik við ungu kyn­slóðina - tvöföld eignaupptaka“. Þar segir hann meðal annars sáttmála um öruggt húsaskjól hafi verið kastað á bálköst sérhagsmuna, fákeppni og pólitísks aðgerðaleysis. Stór orð og við fengum hann til okkar.

Kolbeinn Kristinsson hafði betur gegn Tékkanum Pavel Sour í svakalegum þungavigtarbardaga í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Kolbeinn er taplaus eftir alla tuttugu bardagana sína á ferlinum og vonast til berjast von bráðar á Íslandi. Við fengum Kolbein til okkar í spjall.

Halla Hrund Logadóttir, þingkona Framsóknarflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, komu til okkar og fóru yfir fréttir vikunnar.

Birt

5. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,