Morgunútvarpið

Bjarni Ben,Donald Trump,nýjar reglur á HM og bændur uggandi vegna innbrota

Brotist var inn í Reykjabúið í Mosfellsbæ aðfaranótt mánudags og fuglar bornir út sem síðar þurfti aflífa. Bréf sem skilið var eftir á staðnum gaf í skyn verknaðurinn tengdist dýravelferð. Þá var brotist inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí og skemmdir unnar á skrifstofu og svínahúsum búsins með þeim afleiðingum dýr gengu laus og sum drápust. Þetta er nýr veruleiki sem bændur í þessum iðnaði búa við og Margrét Ágústa Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Bændasamtakanna kom til okkar og ræddi þetta.

Donald Trump ætlar hætta við stofnun sjóðs sem átti greiða bætur til fólks sem réðist á þinghús Bandaríkjanna 6. janúar 2021, til koma í veg fyrir formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna 2020. Stofnun sjóðsins hafði verið harðlega gagnrýnd af bæði Demókrötum og Repúblikönum og þá meðal annars á þeim grundvelli með honum vildi Trump gefa bandamönnum sínum peninga skattgreiðenda. Dómstólar hafa undanfarið komið í veg fyrir ýmsar hugmyndir Trump raungerist og Þorgils Jónsson fréttamaður fræddi okkur um það.

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, ferðast um landið og tekur stöðuna á fyrirtækjum, ræðir lausnir á efnahagsmálum og stöðuna í kjarasamningum. Í dag er hann staddur á Akureyri og við fengum hann í hljóðstofu RÚV þar sem við ræddum við hann stöðuna.

Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson kom til okkar vopnaður nýjum reglum í knattspyrnu sem munu taka gildi á HM.

Birt

4. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,