Morgunútvarpið

Steraleikarnir,Kvennaathvarfið,dánaraðstoð og Emin atvinnuboxari

Þrír af hverjum fjórum Ís­lendingum styðja dánarað­stoð, samkvæmt nýrri könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir samtökin Lífsvirðingu. Könnunin sýnir dánaraðstoð er bæði siðferðilegt og persónulegt málefni. Afstaða fólks mótast af ólíkum gildum, reynslu og hugmyndum um sjálfræði, lífslok og mannlega reisn. Markmið Lífsvirðingar er stuðla opinni, upplýstri og uppbyggilegri umræðu um dánaraðstoð og Bjarni Jónsson, gjaldkeri félagsins, kom til okkar.

Í fyrra dvöldu 239 konur og börn í Kvennaathvarfinu og veitt voru tæplega 1.600 ráðgjafaviðtöl. Rannsóknir sýna það tekur þolendur ofbeldis í nánum samböndum meðaltali sex til sjö tilraunir yfirgefa ofbeldissamband til fulls en Kvennaathvarfið er griðastaður þolenda í þessu umróti og eru dyr þess ætíð opnar fyrir konunum. hefur Kvennaathvarfið hleypt af stokkunum nýrri herferð undir yfirskriftinni Rjúfum mynstrið. Táknmynd herferðarinnar er sérhönnuð íslensk prjónauppskrift sem ber nafnið SKJÓL og rennur allur ágóði af sölu hennar óskertur til Kvennaathvarfsins. Linda Dröfn Gunnarsdóttir frá Kvennaathvarfinu og Tinna Laufdal, sem hannaði prjónauppskriftina, komu til okkar.

Boxarinn Emin Kadri er á leiðinni til Kaupmannahafnar berjast við Erik Mato frá Ungverjalandi. Emin er atvinnumaður í boxi og hefur stundað íþróttina frá tíu ár aldri. Áður en hann gerðist atvinnumaður átti hann farsælan feril sem áhugamaður og barðist rúmlega 50 sinnum og tók þátt í heims- og Evrópumeistaramótum. Emin er líka virkur á samfélagsmiðlum og er með sterkar skoðanir og hann kom til okkar í spjall.

Hinir svokölluðu Steraleikar, eða „Enhanced Games“, fóru fram á dögunum en þeir eru hugarfóstur ástralska auðkýfingsins Aron D'Souza. Hann vildi halda íþróttakeppni þar sem engar reglur eru varðandi lyfjanotkun en til stóð slá hin ýmsu heimsmet með aðstoð ólöglegra, árangursbætandi efna. Eitt heimsmet féll á leikunum en það verður sjálfsögðu ekki skráð. Íslendingar áttu líka fulltrúa á Steraleikunum en Hafþór Júlíus Björnsson reyndi slá heimsmetið í réttstöðulyftu án árangurs. Almarr Ormarsson úr íþróttadeildinni okkar mætti og rýndi Steraleikana.

Birt

28. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,