Morgunútvarpið

Emmsje Gauti,maraþonmet,Álfgrímur og Eldpipar

Heitar sósur, fræðsla og átkeppni verður á meðal þess sem boðið verður upp á í Gamla bíó á sunnudaginn á Reykjavík Chili Festival. Áhugi á eldpipar hefur farið vaxandi á Íslandi eins og annars staðar í heiminum, mörg fyrirtæki á Íslandi nota eldpipar í vöruframleiðslu og fjöldi þeirra notar íslenskan ylræktaðan eldpipar. Þetta er eitthvað sem þarf ræða og við fengum til okkar Ívar Örn Hansen, sem kallar sig Helvítis kokkinn og Þóreyju Hafliðadóttur, eiganda Helvítis ehf.

Tónlistarmaðurinn Álfgrímur Aðalsteinsson sendir frá sér plötuna Hjartnætti í næstu viku en þar mætast dansvænn hljóðheimur ljóðrænni einlægni og tilfinningalegri dýpt. Platan fjallar um ástina, vináttuna, ástarsorg, sjálfskoðun og hugrekkið sem felst í því horfast í augu við eigin tilfinningar. Rósavín er fyrsta lag plötunnar og kemur út sem smáskífa í dag og við fengum Álfgrím sjálfsögðu til okkar í Morgunútvarpið ræða tónlistina og lífið sjálft.

Emmsjé Gauti fagnar um þessar mundir tíu ára afmæli plötunnar Vagg&Velta. Platan inniheldur auðvitað ofursmelli á borð við Reykjavík og Strákarnir og festi Gauta í sessi sem einn farsælasta rappara þjóðarinnar. Gauti ætlar halda upp á afmæli plötunnar með tónleikum í Gamla bíói í lok maí en fyrst kom hann til okkar í Morgunútvarpið og ræddi litríkan ferilinn.

Íþróttamolinn með Helgu Margréti Höskuldsdóttir sem mætti beint af íþróttadeildinni með eldheitt mál sem hún tók allar 360 gráðurnar.

Birt

30. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,