Morgunútvarpið

Sumarveðrið,Mosfellingur,rannsókn á stúlkum í íþróttum og starfsfólk MAST verður fyrir áreitni

Starfsfólk Matvælastofnunar hefur undanfarið orðið fyrir óvenjulega miklu áreiti, hótunum og ærumeiðingum, þar sem settar eru myndir af starfsfólki og það nafngreint á samfélagsmiðlum og jafnvel í einstaka fjölmiðlum. Þá eru dæmi um starfsfólk MAST hafi sett upp öryggiskerfi á heimilum sínum og óttast jafnvel um börn sín. Atvikin tengjast afskiptum Matvælastofnunar af dýrahaldi og beitingu þvingunarúrræða þar sem brotið er á velferð dýra. Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri MAST, kom í Morgunútvarpið og segir okkur betur frá þessu.

Unglingsárin eru tímabil mikilla líkamlegra, andlegra og félagslegra breytinga, þar sem kynþroski hefur veruleg áhrif á bæði líkamsþroska og líðan. Stúlkur, knattspyrna og rannsókn á atgervi er rannsóknarverkefni við Háskóla Íslands sem fjallar um frammistöðu, líðan og þátttöku stúlkna í knattspyrnu á unglingsárum. Verkefnið snýst í grunninn um skilja betur hvað mótar íþróttaferil stelpna á þessum aldri, bæði líkamlega, andlega og félagslega, og hvernig þessir þættir þróast og tengjast hvor öðrum yfir tíma. Rúna Sif Stefánsdóttir, PhD, Lektor í íþrótta og heilsufræði í Háskóla Íslands, mætti og sagði okkur frá þessu áhugaverða verkefni.

Sumarið er komið og svitnum við öll við tilhugsunina um veðrið. Hvernig verður sumarið? Milt? Hlýtt? Kalt? Við fengum Sigga Storm, veðurfræðigni frá Veðri ehf., til skoða langtímaspárnar, rýna í gögnin og reyna gefa okkur vísbendingu um hvað er í vændum.

Hvað erum við fara setja á grillið í sumar? Eru það bara gömlu, góðu kryddlegnu kótiletturnar með slettu af kartöflusalati eða er hægt fara einhverjar aðrar leiðir. Matgæðingurinn Guðný Ljósbrá kíkti til okkar með góðar hugmyndir um hvað er hægt borða þegar sólin skín.

Sigmar Vilhjálmsson keypti nýlega bæjarblaðið Mosfelling. Hafrún Hafliðadóttir hefur verið ráðin ritstjóri og við fengum þau til okkar.

Birt

24. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,