Morgunútvarpið

Inga pirrar kennara,sigurvegari Söngkeppni framhaldsskólanna og unnar matvörur á allra vörum

Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, kom víða við í ræðu sinni á þingi Kennarasambandsins í gær við misjafnar undirtektir stéttarinnar. Inga lýsti meðal annars skoðun sinni nota ætti tölustafi í einkunnagjöf í grunnskólum en ekki bókstafi, eitthvað sem olli Magnúsi Þór Jónssyni, formanni Kennarasambandsins, gríðarlegum vonbrigðum. Í viðtali á Vísi sagði hann áhyggjuefni ríkisstjórnin ætli halda áfram kasta hlutum til kennara sem ganga þvert gegn ríkjandi aðalnámskrá. Magnús Þór kom til okkar í Morgunútvarpið.

Guðjón Þorgils Kristjánsson, nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í Háskólabíó um síðustu helgi. Guðjón flutti lagið Strange eftir Celeste en hann söng lagið á íslensku við eigin texta, sem ber heitið „Ég skil ekki neitt.“ Dómnefndina skipuðu Helgi Björnsson, Bríet og Þormóður Egilsson og gilti val þeirra til helmings á móti atkvæðum í sms-kosningu áhorfenda. Guðjón Þorgils á framtíðina fyrir sér og hann renndi við í Morgunútvarpinu.

Okkar maður Einar Örn Jónsson mætti með eldheitan mola úr heimi íþróttanna.

Unnar kjötvörur eru á allra vörum eftir borgarstjórn samþykkti matarstefnu sem felur í sér börn fái ekki unnar kjötvörur í mötuneytum leik- og grunnskóla borgarinnar. Er þetta rétt skref eða munu blessuð börnin sakna þess borða bjúgu? Vorum við gefa þeim bjúgu yfirhöfuð? Hvaða áhrif hafa bjúgu á börn? Dögg Guðmundsdóttir, klínískur næringarfræðingur frá Nutriment RVK, kom til okkar og við tókum málið allar 360 gráðurnar.

Birt

16. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,