• 00:11:45Misskilningur um gervigreind
  • 00:28:09Krakkfaraldur á Íslandi
  • 00:48:20Kokkakonur stofna félag
  • 01:11:58Auddi Blö á bak við barinn

Morgunútvarpið

Kokkakonur,krakkfaraldur,Auddi Blö og gervigreindarmisskilningur

Ákveðinn misskilningur er í gangi í umræðunni um gervigreind. Stundum er sagt gervigreind muni til dæmis leysa forritara af hólmi og hver sem er gæti lært hvað sem er með hjálp gervigreindar. Á sama tíma eiga fyrirtæki í erfiðleikum með innleiða sjálfvirknilausnir sem raunverulega skapa virði og eftirspurn eftir fólki sem skilur þessa tækni til hlítar heldur áfram aukast. Stefán Ólafsson, lektor við HR og forstöðumaður CADIA, rannsóknarseturs HR á sviði gervigreindar,kom til okkar í spjall um málið.

Kveikur fjallaði í gærkvöldi um krakkfaraldur á Íslandi og refsistefnu stjórnvalda. Kókaín flæðir inn til landsins í áður óþekktu magni og tæknideild lögreglunnar hefur ekki undan taka á móti og greina fíkniefnasendingar . Sífellt fleiri reykja kókaín, sem er kallað krakk þegar það er reykt. Hvað segja meðferðaraðilar? Elías Guðmundsson, forstöðumaður Krýsuvíkur, hefur tekið eftir þessari þróun og hann kom til okkar í Morgunútvarpið. Þess geta Krýsuvíku verður 40 ára í næstu viku.

Kokkakonur er nýstofnað félag fyrir konur í matreiðslubransanum. Félagið er stofnað af fjórum konum sem vilja deila reynslu sinni af þessum karllæga heimi og segja þær mikilvægt aðh afa sameiginlegan vettvang til geta talað opinskátt um reynslu sína og upplifun. Ólöf Helga Jakobsdóttir, matreiðslumeistari og rekstrarstjóri á veitingahúsinu Horninu, Guðfinna Guðmundsdóttir, matreiðslumeistari og menntunarfræðingur og Guðrún Sveinsdóttir, matreiðslumeistari og kennari, kíktu til okkar.

Okkar maður Auðunn Blöndal hefur opnað hverfispöbbinn Fossinn í kjarnanum Grímsbæ í Fossvogi. Audda tókst opna bjórdælurnar rétt áður en boltinn rúllaði af stað í bestu deildinni og eru þau byrjuð elda ofan í svanga íbúa hverfisins. Auddi kom til okkar í heimsókn.

Birt

15. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,