Morgunútvarpið

Offita er vaxandi vandamál,núvitund,þrifatips og gervigreindin spáir fyrir um veður

Verð á vörum og þjónustu togar verðbólguna upp og neytendur vita ekki sitt rjúkandi ráð. Þá er gott vita af hópnum Sparnaðartips sem inniheldur rúmlega 47 þúsund meðlimi. Þar skiptist fólk á góðum ráðum þegar kemur sparnaði sem við megum til með deila með hlustendum okkar. Morgunútvarpið heyrði í Aldísi Buzgó, sem leiðir þennan þarfa hóp fólks.

Offita er vaxandi vandamál hér á landi og víða um heim. Gögn sýna vandinn er ekki á undanhaldi og stjórnvöld hafa lagt til aðgerðir til sporna við offitu. En af hverju er offita enn þá vaxandi vandamál. Birna Þórisdóttir, lektor við matvæla- og næringarfræðideild HÍ, ætlar svara þessari spurning í ráðstefnunni Vísindi á vordögum, sem fer fram á Hilton Nordica 8. og 9. apríl. Ráðstefnan er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Landspítala en þar hittist vísindafólk, heilbrigðisstarfsfólk, nemendur og almenningur og kynnir sér það sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðisvísindum á Íslandi hverju sinni. Boðið er upp á tæplega 200 erindi í 36 málstofum. Það er ókeypis á ráðstefnuna og hún er opin öllum. Birna kom til okkar.

Eftir hafa tekist á við kulnun og krabbamein leitar Róbert H. Hnífsdal í slökun, núvitund og hreyfingu í stað hraða og spennu. Hann vinnur verkefni sem hann kallar „Þú komst ekki svona langt til komast ekki lengra“ sem er fyrirlestur um lífshlaupið og veikindin sem breyttu viðhorfi hans til lífsins. Róbert vill hjálpa fólki verða betri manneskjur sem eru meðvitaðari um sjálfar sig og ætlar koma til okkar í Morgunútvarpið og sagði okkur betur frá þessu áhugaverða verkefni.

Við látum páskana ekki ræna af okkur tæknihorninu enn einu sinni og fáum við sérfræðing okkar í þeim málum, Guðmund Jóhannsson, til okkar á þriðjudegi til ræða gervigreind og veðurspár.

Valgarður Lyngdal Jónsson formaður bæjarráðs á Akranesi var á línunni en á Skagamenn er ósáttir við hversu seint Vegagerðin tilkynnti um lokun Hvalfjarðagangna vegna viðhalds en útlit er fyrir göngin verði lokuð á nóttunni í einar sjö vikur.

Birt

7. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,