Í vikunni hefst hreyfimyndahátíð í Reykjavík í samstarfi við Stockfish kvikmyndahátíð en þá breytist borgin í lifandi gallerí hreyfimynda. Á hátíðinni verða tilraunakvikmyndir, innsetningar og utanhússvarpanir sýndar á ýmsum stöðum í miðborginni. Helena Jónsdóttir, dans- og hreyfimyndahönnuður, mætti í Morgunútvarpið og sagði okkur frá þessari áhugaverðu hátíð.
Umferð um Hormússund hefur nær stöðvast eftir að Bandaríkin og Ísrael réðust inn í Íran. Um sundið, milli Persaflóa og Ómanflóa, liggur ein mikilvægasta siglingaleið heimshafanna, um fimmtungur alls olíuflutnings fer þar um og hefur ástandið leitt af sér mikla hækkun á olíuverði. Í gær bárust fréttir af því að Bretar vinni að áætlun um opnun Hormússunds en að NATO komi þar hvergi að. Kemur þessi yfirlýsing Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, í kjölfarið á því að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði vont fyrir framtíð NATO ef aðildarríkin myndu ekki aðstoða í Íran og hefur hann biðlað til fleiri þjóða. En hvers vegna er Homússund svona mikilvægt? Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda, var á línunni og útskýrði málið fyrir okkur.
Strákarnir okkar eru mættir til landsins eftir frækinn árangur á EM í handbolta í janúar, þar sem þeir lentu í fjórða sæti. Strákarnir hitta aðdáendur sína í Smáralind klukkan 16.30 í dag og framundan eru svo tveir æfingaleikir gegn Svíþjóð. Ýmir Örn Gíslason, línu- og varnarmaður íslenska landsliðsins og fyrirliði Göppingen í Þýskalandi og hægri skyttan Viggó Kristjánsson, sem leikur með Erlangen í Þýskalandi, kíktu til okkar í Morgunútvarpið og fóru yfir stöðuna.
Okkar maður Friðrik Dór er ætíð með mörg járn í eldinum en síðustu misseri hefur hann verið upptekinn við Iceguys-verkefnið, sem varð eflaust stærra en flestir bjuggust við. Undanfarið höfum við þó séð glitta í gamla, góða Friðrik Dór en ásamt því að syngja um ástina í nýju lagi með Bubba Morthens þá kemur hann fram á sviði og flytur eigin lög. Loks blæs Friðrik til sinnar árlegu hittaramessu í Kaplakrika 16. júní en miðasala er þegar hafin. Við buðum Frikka í ólgandi kaffibolla og spjall.
Reykjavík bruggfélag hóf á dögunum sölu á nýjum bjór í Vínbúðum. Það er svo sem ekki í frásögur færandi en til að fá að senda bjórinn í búðirnar þurfti að uppfylla eitt skilyrði: Að strika yfir orð sem þótti ekki við hæfi barna. Innihald dósarinnar er að sjálfsögðu alls ekki við hæfi barna en óritskoðuð útgáfa af bjórnum hefur verið seldur undanfarnar vikur í verslun bruggfélagsins í Skipholti. Hvaða hræðilega orð var þetta og hvaða útlitslegu skilyrði þurfa bjórframleiðendur að uppfylla til að fá að selja bjórinn sinn í Vínbúðunum? Bruggarinn Sigurður Snorrason, eigandi Reykjavík bruggfélags, kom til okkar og fór yfir málið.