Morgunútvarpið

Grágæsin,gervigreindin,netsvik og hvað verður um íslenskuna í ESB

Gervigreindin getur haft áhrif á hvernig fólk hugsar, skrifar, man og metur upplýsingar. Fyrstu rannsóknir benda til þess fólk eyði minni tíma í hugsa um það sem verið er gera, og hvernig, og þar af leiðandi treysti gervigreindinni í auknum mæli til þess leysa verkefni fyrir sig. Elín Carsteinsdóttir, aðstoðarprófessor við tölvunarfræðideild HR, flytur erindi um þetta á ráðstefnunni AI and Society í Háskólanum í Reykjavík á morgun og kom til okkar í Morgunútvarpið og fræddi okkur.

Eldra fólk er oftar en ekki skotmörk netsvikara sem beita ýmsum aðferðum til hafa af fólki háar upphæðir. Til reyna koma í veg fyrir fólk lendi í klóm netsvikara hafa bankar reynt fræða viðskiptavini sína um netöryggi og Eva Valdís Jóhönnudóttir, sérfræðingur í svikum hjá Íslandsbanka, hefur undanfarið tekið á móti fjölmennum hópum á sérstökum fræðslukvöldum. Hún kom til okkar og fræddi okkur um netsvik og sagði okkur raunverulegar sögur um aðferðir netsvikara.

Íslendingar velta fyrir sér kostum og göllum þess ganga í Evrópusambandið, eftir ríkisstjórnin lagði fram tilliögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna í lok ágúst. En hvað yrði um íslenskuna ef Íslendingar myndu kjósa ganga til liðs við ESB? Eiríkur Rögnvaldsson, fyrrum prófessor í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, bendir á ýmislegt sem ESB gerir til styrkja tungumál aðildarríkja sinna og hann kom til okkar og fræddi okkur um það.

Hegðun grágæsarinnar hefur breyst mikið undanfarin ár. Grágæsin er hætt fljúga suður á bóginn og hangir hér allan veturinn. Hvað útskýrir þetta? Arnór Sigfússon er okkar helsti sérfræðingur í grágæsum. Hann fylgist vel með þeim og leit við í Morgunútvarpinu og sagði okkur meira um þessar breyttu ferðavenjur.

Birt

12. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,