Færni á vinnumarkaði er starfstengt nám fyrir fatlað fólk í atvinnuleit sem er að stíga inn á almenna vinnumarkaðinn. Námið er samstarfsverkefni Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Vinnumálastofnunar, Símenntar og Fjölmenntar. Í Kastljósi í gærkvöldi fór Siggi Gunnars í heimsókn á vinnustað sem hefur tekið þátt í náminu og fékk að heyra reynslusögu Daníels Smára Bjarnasonar, sem er einn þeirra sem hefur öðlaðist betra líf með því að sækja námið. Nú eru hins vegar blikur á lofti því eftirspurnin í námið er meiri hægt er að anna og óvissa ríkir um fjármögnun. Hildur Betty Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, kom Morgunútvarpið og sagði okkurfrá verkefninu.
Grínistinn Hrannar Björnsson hefur vakið talsverða athygli fyrir sprenghlægilega sketsa á samfélagsmiðlum. Á Tiktok skipta áhorfin tugum milljóna en ásamt því að birta efni á eigin síðu tilheyrir hann grínhópnum Tiny Idea, með fólki sem hann kynntist í háskóla í Bandaríkjunum. Tiny Idea vinnur nú að nýrri sjónvarpsseríu en þau koma einnig fram á sviði og hafa troðið upp í Los Angeles og San Francisco. Ásamt því að leika sjálfur starfar Hrannar sem handritshöfundur fyrir þætti á streymisveitunni Dropout, sem hét áður College Humor. Við hringdum til New York og heyrðum í Hrannari.
Eins og komið hefur fram í Morgunútvarpinu verður sífellt algengara að karlmenn gangist undir fegrunaraðgerðir. Ásamt því að hópast út í hárígræðslu færist í aukana að þeir noti fylliefni til að slétta úr hrukkum, breyta og bæta. En hvernig horfir þessir þróun við miðaldra körlum? Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason halda úti hlaðvarpinu Menn eins og við, sem fjallar að þeirra sögn um vitleysuna í miðaldra körlum. Það lá því beinast við að leita til þeirra um álit og þeir kíktu við.
Í fræðsluþáttaröðinni Konur í íþróttum eru teknir fyrir ýmsir þættir sem einkenna íþróttakonur á einn eða annan hátt, svo sem tíðahringurinn, andleg heilsa, hormónar, svefn, álag og meiðsli, meðganga og endurkoma eftir fæðingu. Þetta er í fyrsta skipti sem fræðsluefni á borð við þetta er framleitt en markmiðið er að auka fræðslu og þekkingu og hámarka þannig frammistöðu, draga úr líkum á meiðslum og stuðla að bættri heilsu íþróttakvenna. Að baki verkefninu standa Lára Hafliðadóttir, doktorsnemi í HR og Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur og deildarforseti íþróttadeildar HR og Lára kom til okkar í Morgunútvarpið.