Morgunútvarpið

BDSM,Bangsafélagið,Loftlagsráðherra,yoga og mýtur um getnaðarvarnir

Íslenska frumkvöðlafyrirtækið YogaNúna býður upp á jógatíma á netinu fyrir þau sem komast ekki í jógasalinn. Í febrúar hafa þau verið í herferð sem kallast Vellíðan á vinnustað, sem snýst um bæta vellíðan í vinnu með einföldum, mannlegum og aðgengilegum yogatímum, sem auðvelt er samþætta inn í vinnudaginn. Jógakennararnir Þóra Rós Guðbjartsdóttir og Íris Dögg Oddsdóttir mættu í Morgunútvarpið og kenndu hlustendum meðal annars öndunaræfingar.

Á samfélagsmiðlum eins og Tiktok og Instagram er margt sagt um getnaðarvarnir og fæst af því er satt. Ljósmæðurnar Steinunn Zophoníasdóttir og Jórunn Oddssdóttir hjá Heilsubrú Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hafa hitt ótal ungar konur og heyrt allar flökkusögurnar. Þær hafa boðið upp á einstaklingsfræðslu sem konur geta skráð sig í beint í gegnum netið og mættu í Morgunútvarpið og sögðu okkur hvað er satt og hvað er logið.

Svifsryksmengunin á höfuðborgarsvæðinu gerir fólki lífið leitt og í Morgunútvarpinu í gær heyrðum við í lækni sem bar áhrif hennar saman við tóbakspláguna. Svifrykið getur valdið bæði krabbameini og heilablóðfalli en samt upplifir fólk aðgerðarleysi stjórnvalda, fyrir utan vinsamleg tilmæli til viðkvæmra, barna og gamalmenni um halda sig innandyra þegar loftgæði eru slæm. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra vildi sem óbreyttur þingmaður á sínum tíma sporna við óþarfri notkun á nagladekkjum í þéttbýli með gjaldtöku. En hvað finnst honum í dag þegar hann stýrir umhverfismálunum? Hann kom til okkar í Morgunútvarpið.

Kvikmyndin Pillion varpar ljósi á flókið valdasamspil undirgefni og drottnunar á sjóðheitan hátt. Sænski hjartaknúsarinn Alexander Skarsgård leikur kynþokkafullan mótorhjólaöffara sem leiðir feiminn kórsöngvara leikinn af Harry Melling inn í heim BDSM. Myndin verður frumsýnd í Bíó paradís í samstarfi við Bangasfélagið og BDSM á Íslandi á fimmtudaginn. Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins, Katrín Íris Sigurðardóttir, formaður BDSM á Íslandi og Óli Hjörtur Ólafsson, rekstrarstjóri Bíó Paradís,komu til okkar í spjall um myndina og þessi félög.

Birt

17. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,