30 ár eru liðin frá því að Biskupsmálið kom upp hér á landi en málið hófst þegar þegar Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sakaði Ólaf Skúlason, biskup Íslands, um kynferðisbrot. Í kjölfarið stigu fleiri konur fram og sögðu hann hafa brotið á sér, þar á meðal Guðrún Ebba Ólafsdóttir, dóttir Ólafs. Gabríela Bryndís Ernudóttir sálfræðingur fjallar um málið í nýju hlaðvarpi en fyrsti þáttur kom út á sunnudag. Hún kom til okkar í Morgunútvarpið sagði frá nýjum upplýsingum sem koma fram í hlaðvarpinu og af hverju hún ákvað að fjalla um málið á þessum tímapunkti.
Langflest erum við með háþróaaðar myndavélar í símunum okkar. En eru þessar myndavélar að mynda raunverulegar minningar okkar eða hefur tæknin tekið yfir? Guðmundur Jóhannsson fór yfir þetta áhugaverða mál í Tæknihorninu.
Mikil svifryksmengun var á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Litlu máli virðist skipta þó göturnar hafi verið rykbundnar og samkvæmt nýjustu fréttum er allt rykbindiefni búið á landinu. Örn Úlfar Sævarsson íbúi í Reykjavík skrifaði færslu á Facebook um helgina og sagði óboðlegt að gefast upp fyrir þessu, kallaði eftir viðbrögðum frá pólitíkinni og setti spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt. Við fengum Hjalta Má Björnsson, formann félags lækna gegn umhverfisvá til okkar og fræddumst um skaðleg áhrif svifryks á fólk.
Ráðamenn hittust á öryggisráðstefnunni í München um helgina. Málefni norðurslóða hafa verið í brennidepli eftir að forseti Bandaríkjanna setti stöðu Grænlands rækilega á dagskrá. Evrópskir ráðamenn biðu því með öndina í hálsinum eftir erindi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, eftir að varaforsetinn JD Vance lét þá heyra það við sama tilefni í fyrra. Mildur tónn var hins vegar í ræðu Rubio. Á fundinum varð einnig ljóst að Íslensk stjórnvöld ætli að verja um milljarði króna í vopnakaup fyrir Úkraínu á næstunni, sem var talsvert rætt hér heima um helgina. Jónas G. Allansson, Skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, er nýkominn heim af fundinum. Hann kíkti í Morgunútvarpið og fór yfir stöðuna.
Morgunútvarpið beindi sjónum sínum að Ólympíuleikunum á Ítalíu og ræddi við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson um það sem hefur borið hæst þar undanfarna daga.