Fatahönnuðurinn Berglind Ósk Hlynsdóttir, sem kallar sig Bosk, vinnur eingöngu með ónýttan textíl, sem gefur henni ákveðinn ramma til að vinna inni í. Hún kom til okkar í Morgunútvarpið og ræddi um endurvinnslu í hönnun og mikilvægi þess að hafa aðgang að tækjum og tólum til endurvinnslu. Berglind flytur erindið Þráhyggja fyrri endurvinnslu á vegum Miðstöð hönnunar og arkitektúrs í Grósku í dag en þar er sjónum beint að stöðu og framtíð hönnunar og arkitektúrs.
Edrúvika Krýsuvíkursamtakanna stendur nú yfir en í henni eru landsmenn hvattir til að sleppa áfengi og gefa í staðinn andvirðið til Krýsuvíkur. Sem stendur eru um 120 einstaklingar á biðlista eftir meðferð í Krýsuvík, flestir þeirra ungt fólk í miklum vanda. Samkvæmt samtökunum er nauðsynlegt að stytta þessa biðlista, nokkuð sem krefst aukins fjármagns og víðtækari þjónustu. Með fyrirhugaðri opnun áfangaheimilis verður hægt að taka á móti 41 einstaklingi samtímis í stað 29, sem mun stytta biðlistana verulega og bjarga mannslífum. Tolli Morthens hefur unnið náið með Krýsuvík og kom í Morgunútvarpið í spjall.
Björgvin Páll Gústavsson, aldursforseti íslenska karlalandsliðsins í handbolta, birti áhugaverða færslu á Instagram á dögunum þar sem hann fór yfir fúkyrðaflaum netverja um sjálfan sig á meðan á EM í handbolta stóð yfir. Hann segir að þrátt fyrir að hann hafi ekki spilað mikið á mótinu hafi gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri — eitthvað sem hann segist elska. Björgvin Páll mætti í Morgunútvarpið í spjall.
Börn á aldrinum 9 til 12 ára sem nota TikTok, Instagram og Snapchat er að fækka en á sama tíma fjölgar þeim sem nota Roblox, sem er einskonar samfélagsmiðill í dulargervi tölvuleiks. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknarinnar Börn og netmiðlar sem Netvís - Fjölmiðlanefnd og Menntavísindasvið Háskóla Íslands framkvæmdu. Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri hjá Netvís, fór yfir þessar niðurstöður með okkur og hvað þær þýða.
Bandaríski listskautakappinn Ilia Malinin sýndi ótrúleg tilþrif á Ólympíuleikunum á Ítalíu þegar hann þegar hann sýndi afturábak heljarstökk sem hefur verið bannað í 50 ár sökum þess hve hættulegt það er. En hvað er svona hættulegt við það og af hverju er búið að leyfa það aftur. Ásdís Rós Clark er sérfræðingur á þessu sviði og fræddi okkur um málið.