Morgunútvarpið

12. júní - LA, þingið og Grænland

Lögregluyfirvöld í Los Angeles hafa handtekið nærri fjögur hundruð manns vegna mótmælanna sem fram hafa farið í borginni síðan á laugardag. Sagt er færast yfir borgina. Við tökum stöðuna með Dröfn Ösp Snorradóttur-Rozas sem er búsett í LA.

Kristján Hafþórsson, einn jákvæðasti maður landsins, félagsfræðingur og fyrirlesari, verður gestur okkar eftir fréttayfirlitið hálf átta en hann ræðir í sumar við krakka í vinnuskólanum um jákvæðni og hugrekki.

Við höldum áfram ræða baráttu Grænlendingar þegar kemur því leika keppnisleik í knattspyrnu á alþjóðasviðinu. Guðmundur Þorsteinsson býr þar og þekkir íþróttamálin vel og hann verður á línunni hjá okkur.

Við ræðum stöðuna á þingi morguninn eftir eldhúsdagsumræður við Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, og Ragnar Þór Ingólfsson, þingflokksformann Flokks fólksins.

Hafsteinn Einarsson lektor í tölvunarfræði ræðir við okkur um rannsókn á gervigreind á vegum Apple sem hefur gengið eins og eldur um sinu.

Í lok þáttar heyrum við í Ragnhildi Þórðardóttur heilsusálfræðingi sem minnir fólk á taka ekki dugnaðarkvíða með sér í sumarfríið.

Frumflutt

12. júní 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Hafdís Helga Helgadóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,