Morgunútvarpið

15. maí - Nakba, Íslandsbanki og veður

Við höldum áfram ræða veðurblíðu næstu daga, við Adríönu Karólínu Pétursdóttur, formann félags mannauðsfólks, og förum yfir áhrif veðurs á vinnu og vinnustaði.

Í dag er alþjóðlegur minningardagur um Nakba og Nakba-ganga verður á alþjóðlegum baráttudegi fyrir Palestínu, 17. maí. Hjálmtýr Heiðdal formaður Félagsins Ísland-Palestína og Lóa Hjálmtýsdóttir koma til okkar og segja okkur betur frá.

Sumarið er komið og grilllyktin allt umlykjandi þessa dagana. Hvað er heitast á grillinu sumarið 2025? Við heyrum í grillkónginum Alfreð Fannari Björnssyni.

Útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka lýkur síðdegis í dag. Við ræðum stöðuna við Snorra Jakobsson, hagfræðing hjá Jakobsson Capital.

Cannes kvikmyndahátíðin er hafin og það hefur vakið athygli og jafnvel undrun hátíðarhaldarar gáfu í upphafi hátíðar út reglur um klæðnað þar sem kemur m.a. fram nektarklæðnaður hvers kyns bannaður. Búningahönnuðurinn Karen Briem mætir í spjall um málið.

Ragnar Eyþórsson, framleiðandi og sjónvarpsspekingur, verður gestur okkar í lok þáttar þegar við ræðum sjónvarpssumarið framundan.

Frumflutt

15. maí 2025

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Hafdís Helga Helgadóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,