
Lestin
Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í dag ganga Ísraelsmenn að kjörborðinu í fyrsta sinn síðan hryðjuverkaárásir Hamas voru gerðar þann 7. október 2023. Sigurstranglegastir þykja flokkar Netanjahús, sitjandi forsetisráðherra, og miðjuflokkur Gadi Eisenkots, fyrrum yfirmaður í ísraelska hernum. Afar ólíklegt er að annar þessara flokka nái hreinum meirihluta og mögulegt að smærri flokkar ísraelskra araba muni skipta sköpum við stjórnarmyndun. Rafn Ágúst Ragnarsson, blaðamaður á Vísi, kemur til okkar og ræðir stöðuna.
First Love, Fyrsta ástin, fyrsti hljóðgervillinn frá íslenska fyrirtækinu Love kemur í verslanir síðar í vikunni. Hann hefur verið nokkur ár í smíðum, er framleiddur í Kína, Filippseyjum og á Íslandi og kostar 89.900 krónur. Við forvitnumst um græjuna og fáum tóndæmi hjá Kára Halldórssyni og Markúsi Bjarnasyni stofnendum fyrirtækisins.
Erum við kýr framtíðar? Haukur Már Helgason veltir fyrir sér þessari spurningu í sínum fjórða pistli um gervigreind og samfélagið. NATO, Palantir og beljur sem skilja ekki peninga koma meðal annars við sögu í pistlinum

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.