Hýr vinnumarkaður, konfektgerð í Grindavík, uppistandarinn Joy og barsvar með Veru Illuga
Jóhann Alfreð sat í stúdíó 2 en Steiney kom sér fyrir á Pride-miðstöðinni í Iðnó þar sem hún hitti meðal annars á Veru Illugadóttur sem stendur fyrir hinsegin Barsvari þar í kvöld. Hún leyfði okkur og hlustendum að spreyta sig á nokkrum spurningum úr kvissinu frá í fyrra.
Siggi Gunnars leit líka við en hann mun stýra skemmtiþætti á sunnudagskvöld sem nefnist Undir regnboganum í tilefni Hinsegin daga. Hann sagði okkur frá þættinum og því sem stendur til.
Hvernig er staða hinsegin fólks á íslenskum vinnumarkaði? Hvaða áskoranir blasa enn við og hvaða ávinningur felst í því að skapa vinnustaði þar sem fjölbreytileiki og inngilding eru höfð að leiðarljósi? Reynt var að svara þessum spurningum á opnum fundi í Iðnó í dag og Steiney hitti á Vilhjálm Hilmarsson, hagfræðing hjá Visku stéttarfélagi sem hélt erindi á fundinum.
Jóhann Alfreð var í Grindavík í gær en þar hafa ný fyrirtæki sprottið upp þrátt fyrir erfiðleika síðustu missera. Hann heimsótti Neskju, nýja sælgætis- og konfektgerð í bænum og sendi póstkort af hljóðveginum frá þeirri heimsókn.
Joy er tyrknesk transkona, búsett á Íslandi sem stendur fyrir uppistandi í tengslum við Hinsegin daga. Steiney hitti á hana og fékk að forvitnast um sýninguna og efnistökin.
Þá var vikan botnuð og lesnir upp botnar frá hlustendum við fyrripart vikunnar sem Vala Höskuldsdóttir henti fram.
Birt
7. ágúst 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.