Dómstóll götunnar spyr um almyrkvann, frjálsar íþróttir í gífurlegri sókn og veiðin í fullum gangi
Í dag er slétt vika í almyrkvann á sólu sem við fáum hér vestanlands. Dómstóll götunnar spurði hvort og þá hvar fólk ætli að horfa á sólmyrkvann í næstu viku og hvort sólmyrkvagleraugun séu klár.
Dagbjartur Brynjarsson, sérfræðingur á sviði öryggsmála hjá Ferðamálastofu leit við og sagði okkur aðeins frá hvernig skipulag fyrir almyrkvann gengur og hvað verður gott að hafa í hug þegar við setjum okkur í stellingar eftir helgina.
Það er nóg um að vera í frjálsum íþróttum þessa dagana. Heimsmeistaramót Ungmenna hefst í dag í Bandaríkjunum þar sem við Íslendingar eigum fimm keppendur og í næstu viku er það svo EM fullorðinna þar sem við eigum vaska sveit, heila átta þátttakendur. Guðmundur Karlsson, framkvæmda- og afreksstjóri FRÍ kíkti við hjá okkur.
Árásir hafa stigmagnast milli Rússlands og Úkraínu síðustu daga og voru til að mynda 17 drepnir og 44 sem særðust í Kænugarð nú í nótt. Mist Grönvold af fréttastofu RÚV kom og fór yfir stöðuna.
Háönnin í veiðinni í ám landsins er í fullum gangi. Gunnar Bender, ritstjóri Sportveiðiblaðsins er öllum hnútum kunnugur í veiðinni og veit allt um gang mála.
Birt
5. ágúst 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.