Steiney var á Flúðum, verslunarmannahelgin um allt land og Land og synir
Steiney var stödd á Flúðum þar sem hátíðin Flúðir um versló fer fram. Hún talaði við Bessa, skipuleggjanda hátíðarinnar, kíkti í Sólskinsbúðina og fræddist um glænýja örhátíð sem hefur fengið nafnið Móhátíð og er skipulögð af Snorra Helgasyni.
Við tókum stöðuna á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fer um helgina á Sauðárkróki. Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landsmótsins, var á línunni.
Hvað er að frétta af hljómsveitinni Landi og sonum? Þeir hafa ekki spila mikið undanfarin ár en komu fram á Bræðslunni síðustu helgi og verða í Hjarta Hafnarfjarðar komandi helgina. Hreimur Örn var á línunni.
Þjóðhátið í Eyjum er fastur liður um verslunarmannahelgar. Við hringdum inn í Herjólfsdal og heyrðum í Jónasi Guðbirni Jónassyni, formanni Þjóðhátíðarnefndar.
Guðmundur Óli Sigurðsson er maður sem er með puttann á púlsinum á Siglufiðri en hann er allt í öllu þegar kemur að Síldarævintýrinu.
Botnum vikuna var á sínum stað. Sigurlín Hermannsdóttir bjó til fyrripart sem hlustendur gátu botnað. Við lásum botnana sem bárust.
Birt
31. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.