Hljóðvegur 1

Virðingavottur um Gunnar Þórðarson, marserandi minkaher og Aron Can spilar mest

Gunnar Þórðarson, einn ástsælasti og afkastamesti tónlistarmaður og lagahöfundur landsins er látinn 81 árs aldri. Ólafur Páll Gunnarsson tók saman smá virðingavott um Gunnar úr safni RÚV.

Eins og síðastliðnar vikur fengum við til okkar hagyrðing sem hefur búið til fyrri part úr fréttum vikunnar sem hlustendum gefst tækifæri á botna. Hagyrðingur vikunnar er Sigurlín Hermannsdóttir fyrrum ritstjóri þingræðna á upplýsinga- og útgáfusviði Alþingis.

Fyrriparturinn er:

Í Mosfellsbænum minkaher

marserar um dalinn.

Norðurlandamót hestamanna hefst á mánudaginn. Landsliðsknapar Íslands taka sjálfsögðu þátt og eru í þetta sinn 21 talsins. Það er þannig ef íslenskur keppnishestur fer úr landi á hann ekki afturkvæmt hingað móti loknu. Hluti knapa fer því út og keppir á hestum sem þau lánaða erlendis. Ísólfur Líndal Þórisson landsliðsþjálfari var á línunni hjá okkur.

Í gær bárust fréttir af því brotist hafi verið inn í minkabú í Mosfellsdalnum. Fjöldi minka, sem hleypur á hundruðum ef ekki þúsundum, var hleypt út og líklegt er ekki munu allir nást í hús aftur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið á Dalsbúi sem innbrot. Róbert Arnar Stefánsson, líffræðingur og forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands fór yfir skaðann sem þessi slepping mun hafa á vistkerfið í Mosfellsdal og nánasta umhverfi.

Mjög óformleg rannsókn leiddi í ljós tónlistarmaður sem spilar mest um verslunarmannahelgina er Aron Can. Hann mun koma fram á Neistaflugi í Neskaupstað, Þjóðhátíð í Eyjum og Ein með öllu á Akureyri. Við heyrðum í Aroni hvernig undirbúningur fyrir helgina gengi og hvernig hann ætli láta þetta ganga upp.

Bíll valt af veginum upp Bolafjalli í gær. Betur fór en á horfðist og enginn slasaðist alvarlega en myndir sína bíllinn var eins og kramin áldós eftir veltuna. Kristinn Gauti Einarsson starfandi bæjarstjóri Bolungarvíkur var á línunni.

Birt

30. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,