Hljóðvegur 1

Fullnaðarsigur gegn easyJet, raddað í beinni og borgarstjórarölt

Ming Ting Mancel var í dag dæmd í tólf ára fangelsi fyrir bana dóttur sinni Catherine Mancel á Edition-hótelinu í Reykjavík á síðasta ári í samverknaði við eiginmann sinn. Iðunn Andrésdóttir, fréttakona sem hefur fylgst með málinu, kom til okkar.

Ef þið eruð ferðast með handfarangur takið þá með ykkur málband. Þetta er ráð frá Aðalsteini Svan Hjelm sem lenti í því þurfa greiða sextán þúsund krónur aukalega fyrir handfarangurstöskur sem voru alls ekki of stórar þegar hann flaug með easyJet. Eftir mikla erfiðisvinnu hefur flugfélagið loks viðurkennt mistök og mun endurgreiða peninginn, en Aðalsteinn vill þó vara aðra við sem gætu lent í sömu aðstæðum og hann. Hann var á línunni.

Leikhópurinn Fuglabjarg er hluti af skapandi sumarstörfum Garðabæjar. Þær Katrín, Guðrún og Tinna skipa hópinn og hafa búið til í sumar söngleikjashow-tónleikana Óður til söngleiksins. Öllu verður til tjaldað með lifandi hljómsveit, dönsurum, leikmynd og búningum. Þær stöllur kíktu til okkar.

Dagskráin fyrir Innipúkann, líklega einu hátíðarinnar um verslunarmannahelgina sem lofar engri rigningu, liggur fyrir. Hátíðin er haldin í Austurbæjarbíói og hefst á fimmtudaginn. Eldar Ástþórsson, einn af skipuleggjendum Innipúkans, sagði okkur frá hátíðinni.

Það er komið vikulega liðnum hér á Hljóðvegi 1 sem kallast Bæjarstjóraröltið en í dag verður það Borgarstjórarölt. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur ætlar sýna okkur sinn uppáhaldsstað í Reykjavík sem kannski ekki allir vita af.

Það er nóg um vera á Listasafninu á Akureyri en þar eru hvorki meira minna en 9 sýningar í gangi. Hljóðvegur 1 kíkti í heimsókn og Sigríður Örvarsdóttir safnstjóri sýndi okkur hluta af sýningunum. Þar meðal annars finna samstarfsverkefni með heimsfræga hljóðinnsetningarlistamanninum Zimoun frá Sviss og Sýningu um heilagan fugl eftir Örlyg Kristfinnsson.

Birt

28. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,