Hitabylgja á Austurlandi, stríðið í Íran og heimsókn í Reykjaböðin
Hitabylgja hefur leikið við íbúa og ferðamenn á Austurlandi. Nú telur Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hugsanlegt að gamla hitametið frá Teigarhorni árið 1939 falli. Árni Magnús Magnússon, eigandi fjarðarhjóla eða Fjord bikes á Borgarfirði eystri, var á línunni.
Við tókum stöðuna á pólitíkinni vestanhafs. Donald Trump hefur framlengt heimild sína til hernaðaraðgerða gegn Íran um 60 daga. Þá fer að styttast í þingkosningar í nóvember. Hann Friðjón Friðjónsson, veit ýmislegt um pólitíkina vestra og kíkti til okkar.
Ragnar Eyþórsson framleiðandi kíkti til okkar og fór yfir kvikmyndirnar sem verða í bíó í sumar. The Odyssey ber þar hæst en miklar væntingar eru bundnar við myndina sem Christopher Nolan leikstýrir.
Við rætur Reykjadals hjá Hveragerði eru nú framkvæmdir í fullum gangi en þar verða Reykjaböðin bráðum opnuð og ekki nóg með það heldur eru fimmtán fullbúnir hótelbústaðir á leið til landsins sem verða fluttir í byrjun næstu viku á svæðið. Hólmfríður kíkti í heimsókn um daginn og fékk að sjá hvernig uppbyggingin gengur.
Birt
14. júlí 2026
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Hljóðvegur 1
Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.