Nú er akkúrat um mánuður í sólmyrkvann og margir farnir að telja niður. Stjórnvöld, viðbragðsaðilar og ferðaþjónustan hafa síðustu mánuði búið sig undir komu þúsunda erlendra gesta. Ljóst er að það mun reyna talsvert á innviðina á þessum tíma, og þá ekki síst vegakerfið. Dagbjartur Kr Brynjarsson, sérfræðingur í öryggismálum hjá Ferðamálastofu, og Ásta Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri ferðasviðs hjá Kynnisferðum, komu til okkar og ræddu þessa merkilegu stund og áskoranirnar sem fylgja henni.
Jóhann Alfreð skellti sér á Símamótið um helgina. Þetta stærsta fótboltamót sumarsins fór fram í Kópavogi eins og venjulega. Þarna voru yfir 3000 stelpur að keppa. Jóhann ræddi við nokkra keppendur og fangaði stemninguna.
Jarðböðin við Mývatn voru opnuð í síðustu viku eftir umfangsmiklar breytingar. Framkvæmdirnar hafa verið tímafrekar og kostnaðarsamar, en á meðan þeim stóð uppgötvaðist meðal annars 120 metra langur hellir þegar stækka átti þjónustuhúsið. Nú er nýja aðstaðan loks tilbúin og geta gestir meðal annars heimsótt eins konar gufuhellir. Guðmundur Þór Birgisson framkvæmdastjóri baðanna var á línunni og sagði okkur frá breytingunum.
Starfsfólkið á bókasafni Garðabæjar situr ekki auðum höndum í sumar, þau standa fyrir metnaðarfullri dagskrá fyrir bæði börn og ungmenni núna yfir hásumarið. Lestrardrekinn er dreginn út vikulega, á morgun verður staðið fyrir útifjöri og þá er opinn prjónaviðburður á prjónunum hjá þeim á morgun. Við heyrðum í Margréti Sigurgeirsdóttur, forstöðumanni safnsins.
Þorsteinn Roy Jóhannsson, langhlaupari bar sigur úr býtum í karlaflokki í Laugavegshlaupinu um helgina. Við hringdum Þorstein og fengum að heyra af afreki helgarinnar og stemningunni í kringum Laugavegshlaupið í ár.