Hljóðvegur 1

Lítil laxveiði, sparnaðarráð vikunnar og Leikritið.

fer aleildis spenna hlaupa í Heimsmeistaramótið í fótbolta karla. Útsláttarkeppnin hófst í gærkvöldi og framundan í vikunni eru 15 viðureignir þar sem allt verður undir, í þessari nýju 32-liða útsláttarkeppni. Til stikla aðeins á stóru á því sem gerst hefur hingað til og horfa aðeins í það sem framundan er, komu tvíeykið Edda Sif Pálsdóttir og Einar Örn Jónsson, sem hafa verið bæði fjalla um og lýsa leikjum hér á RÚV.

Inga Steinunn Henningsdóttir, sviðshöfundur frumsýndi nýtt leikverk á dögunum í Aftur á móti. Verkið heitir Leikritið með Ingu Steinunni og er með nýjum gesti í hvert skipti og því engar tvær sýningar eins. Hólmfríður María var á ferðinni og mælti sér mót við Ingu.

Enn geisa miklir hitar víða um Evrópu. Í þætti dagsins hringdum við til Brussel þar sem Brynja Huld Óskarsdóttir, nefndarstýra hjá NATO-þinginu og íbúi í Brussel, sagði okkur hvernig hitinn undanfarið hefur haft áhrif á daglegt líf borgarbúa.

Laxveiðin fer víst rólega af stað um allt land en vonir hún taki glæðast á næstu dögum og vikum. Gunnar Bender, sem heldur úti vefnum veidar.is, veit allt um málið.

Sparnaðarráð Steineyjar er nýr vikulegur liður á Hljóðvegi 1 þar sem Steiney hjálpar hlustendum spara. Þema dagsins voru sparnaðarráð í fríum erlendis.

Birt

29. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hljóðvegur 1

Umsjónarmenn eru Steiney Skúladóttir, Jóhann Alfreð Kristinsson og Hólmfríður María Ragnhildardóttir.

Þættir

,