Kastljós

Þingmenn um Bakkakot, landlæknir, símabann og Galdrakarlinn í Oz

Í Kveik á þriðjudag var fjallað um mál drengja sem segjast hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi á fósturheimilinu Bakkakoti. Þar hafi þeir upplifað vinnuþrælkun, andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Málið hefur vakið mikil viðbrögð meðal almennings en einnig hjá ráðamönnum og alþingismönnum. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fundaði með lögmönnum mannanna og þremur þeirra sem voru vistaðir í Bakkakoti í hádeginu. En hvað hyggst þingið gera? Gestir Kastljós eru þingmennirnir Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir.

María Heimisdóttir var skipuð landlæknir snemma á síðasta ári en í lok október greindist hún með brjóstakrabbamein. Fyrir fáeinum dögum fór hún á klippistofu og lét snoða sig. Þótt það reyni kannski svolítið á þá segir hún það tollur sem hún greiði til þess heilsu.

Á banna notkun síma í grunnskólum og hækka aldurstakmark á samfélagsmiðlum? Símabann verður umræðuefni Torgsins í næstu viku.

Í lok þáttar kíkjum við í Borgarleikhúsið á leiksýninguna Galdrakarlinn í Oz.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

5. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,