Kastljós

Nýr meirihluti í Reykjavík og bústörf í Eyjafirði

Sjálfstæðisflokkurinn, Framsókn og Viðreisn hafa náð saman um tólf manna meirihlutasamstarf í Reykjavík og taka við þann 2. júní. Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verður borgarstjóri Reykjavíkur, Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, verður formaður borgarráðs og Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, forseti borgarstjórnar. Oddvitarnir þrír eru gestir Kastljóss í kvöld.

Nemendum í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit stendur til boða valáfangi þar sem þeir læra um bústörf. Við heimsækjum skólann í lok þáttar.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

27. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,