Kastljós

Síminn kaupir Sýn, Tónræktin, Álfrún Rose

Sýn og Síminn eru í viðræðum um Síminn kaupi nær allan fjölmiðlahluta Sýnar, þar á meðal Bylgjuna og Vísi. Sjónvarpshlutinn verður eftir en óvíst er um afdrif kvöldfréttatíma Sýnar. Hvað þýðir þetta fyrir neytendur og fjölmiðlaumhverfið á Íslandi? Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, og Trausti Hafliðason, ritstjóri Viðskiptablaðsins fara yfir stöðuna.

Það er ekkert bannað og leikgleðin er í fyrirrúmi í tónlistarskólanum Tónræktinni á Akureyri. Þar eru nemar á öllum aldri og öllu litrófi mannlífsins. Við fórum í heimsókn.

Myndirðu vilja tala við látna ástvini með aðstoð gervigreindar? Um það fjallar leikritið Dead Air eftir leikkonuna og leikskáldið Álfrúnu Rose.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

12. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,