Kastljós

Fósturheimili, Grænland og Trump og Júlli safnari

Fréttaskýringaþátturinn Þetta helst á Rás 1 fjallaði í dag um fósturheimilið á Gauksstöðum í Garði á Reykjanesi, sem lokað var árið 2019 eftir hafa verið starfrækt í áratug. Rætt við Lilju Margréti Olsen, lögmann og réttargæslumann rúmlega 20 einstaklinga sem vistaðir voru á heimilinu og greint hafa frá ofbeldi þar.

Sérfræðingur við herrannsóknardeild Kaupmannahafnarháskóla segir Bandaríkin hafa enn áhuga á yfirráðum á Grænlandi en samningaviðræðum um fyrirkomulagið sæe haldið mjög leyndum. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræðir við Lise Wiederholt Christensen.

Það er svalt vera nörd - eða það segir allavegana yfirgrúskarinn Júlíus Júlíusson sem rekur safnarabúð á Dalvík. Sigurður Þorri heimsótti Safnabúð Júlla.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

30. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,