• 00:01:11Sveitarstjórnarkosningar
  • 00:14:47Störf framtíðar
  • 00:20:30Feneyjatvíæringurinn

Kastljós

Sveitarstjórnarkosningar, framtíðarstörf og Feneyjatvíæringurinn

Fimm dagar eru í sveitarstjórnarkosningar, ýmislegt hefur gengið á í aðdragandanum og fylgi flokka tekið breytingum. En hvernig lítur líklegt meirihlutasamstarf út í borginni og hvaða mál gætu haft áhrif á úrslit kosninga? Gestir Kastljóss eru þeir Ólafur Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði og Magnús Sigurbjörnsson fyrrverandi framkvæmdastjóri borgarstjórnarhóps Sjálfstæðisflokksins sem heldur úti hlaðvarpinu Korter í kosningar.

Hvaða störf eiga eftir lifa af gervigreindarbyltinguna og hver ekki? Við komumst því síðar í þættinum.

Við lítum einnig á íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum, stærstu myndlistarhátíð heims, sem hófst fyrir helgi. Listakonan Ásta Fanney Sigurðardóttir er fulltrúi Íslands á hátíðinni í ár.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

11. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Þættir

,