Kastljós

Fjögur ár frá innrásinni í Úkraínu

Í dag eru fjögur ár frá því Rússar réðust inn í Úkraínu og hrundu af stað atburðarás sem átti þátt í breyta skipan heimsmála. Innrásinni átti vera lokið á nokkrum dögum en enn sér ekki fyrir endann á stríðinu, sem hefur kostað mörg hundruð þúsund mannslíf og hrakið milljónir á vergang. Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands og sérfræðingur í málefnum Rússlands fer yfir stöðuna og friðarhorfur.

Um 6 milljónir Úkraínumanna hafa flúið land frá innrás Rússa. Um 6.500 þeirra hafa leitað hælis hér á landi. Hjá Rauða krossinum á Íslandi starfa 30 úkraínskir sjálfboðaliðar í móttökustarfi. Þar á meðal Iryna Hordiienko, sem var atvinnudansari og sjónvarpsstjarna í heimalandinu þegar lífið breyttist í einu vetfangi. Við ræðum við hana.

Við heyrum líka í Kate de Pury, yfirmanni Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva - EBU - í Moskvu. Fjölmiðlafrelsi í Rússlandi er afar skert og gagnrýnin umfjöllun um stríðið þar í landi lítil sem engin. En almenningur er orðinn langþreyttur á stríðinu fórnarkostnaði þess. Hann vill því ljúki sem fyrst - en á forsendum Rússa.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

24. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,