Kastljós

Wolt og verkalýðshreyfingin, dönskukennsla og Þórður Gunnar tónskáld

Heimsendingarfyrirtækið Wolt, sem býður upp á heimsendingar á mat og ýmsum varningi, kom inn á íslenskan markað árið 2023 og nýtur mikilla vinsælda. 400 sendlar starfa í dag sem vertakar fyrir fyrirtækið hér á landi. Þrátt fyrir vinsældir þjónustunnar hjá almenningi hefur verkalýðshreyfingin víða um Evrópu háð harða baráttu við Wolt og sakað fyrirtækið um dansa í kringum leikreglur vinnumarkaðarins. Alþýðusamband Íslands hefur gagnrýnt fyrirkomulagið frá upphafi og fulltrúar sambandsins sendu á frá sér grein í morgun vegna viðburðar sem Wolt stendur fyrir hér á landi á morgun undir yfirskriftinni Raunhagkerfið. Annarr höfundanna er Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir lögrfæðingur hjá ASÍ sem er gestur Kastljóss.

Sjónvarpsþættirnir Danska konan slógu í gegn í upphafi árs hér á RÚV. Kastljós ákvað í kjölfarið kynna sér stöðu dönskukennslu hér á landi.

Söngleikurinn Dead as a dodo hlaut afbragðsviðtökur í New York undir lok síðasta árs og lagði í kjölfarið af stað í tónleikaferðalag um heiminn. Höfundur tónlistar er Íslendingurinn Þórður Gunnar Þorvaldsson, sem við ræðum við í þættinum.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Birt

17. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,