• 00:02:14Lagareldi
  • 00:21:25Rangfeðrun

Kastljós

Tekist á um lagareldi, Samtök rangfeðraðra

Hart hefur verið tekist á um drög atvinnuvegaráðherra um lagareldi, sem kynnt voru í samráðsgátt fyrir skemmstu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja frumvarpið vel ígrundað og hafa möguleika á búa til grundvöll sjálfbærri verðmætasköpun - en gera þó ýmsar athugasemdir. Landssamband veiðifélaga telja það mikla afturför frá frumvarpi síðustu ríkisstjórnar og ávísun á útdauða villta laxastofnsins. Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, voru gestir Kastljóss.

Benedikta Eik Eiríksdóttir, sem leitaði blóðföðurs síns í 20 ár, segir mun algengara en margir halda fólk rangfeðrað. Eftir fjölmargir í svipaðri stöðu og hún höfðu samband við hana stofnaði Benedikta samtök fyrir rangfeðrað fólk.

Dagskrárliðurinn er textaður.

Frumsýnt

2. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Halldórsdóttir, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,