Úr íslensku tónlistarlífi

Úr íslensku tónlistarlífi

Tónlistin í þættinum:

Fimmti þáttur, Romance - Adagio, Allegretto, Adagio - úr verkinu Gran partita KV 361 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Blásarakvintett Reykjavíkur leikur. Útgefið á plötunni Gran partitta Kv 361 (370a) 1996.

Meditation eftir Jules Massenet. Una Sveinbjarnardóttir leikur á fiðlu og Tinna Þorsteinsdóttir á píanó. Útgefið á plötunni Last song árið 2021.

Tíminn og vatnið, eftir Helga Rafn Ingvarsson. Ljóðið orti Steinn Steinarr. Rannveig Káradóttir sópran syngur og Mairi Harris Grewar leikur á píanó. Útgefið á plötunni Fegursta blómið, 2026. (platan kom út á föstudag sl. 23. Okt.)

Ave Maria eftir Huga Guðmundsson. Kór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. Útgefið á plötunni IN CAELO ET IN TERRA 25. okt. 2026.

Greinir Jesús um græna tréð - Orgelhugleiðing um íslenskt þjóðlag við 32. passíusálm Hallgríms Péturssonar eftir Smára Ólason. Tileinkað Guðmundi Sigurðssyni sem leikur á Orgel Hafnarfjarðarkirkju. Útgefið í tilefni af 10 ára afmæli orgels Hafnarfjarðarkirkju undir yfirskriftinni: Orgel Hafnarfjarðarkirkju 10 ára ... leikið á orgel Christians Scheffler og Kristians Wegscheider, 2019.

Úr Sigurdrífumálum, Eddukvæði frá 13. öld. Lag og útsetning eftir Tónlistarhópinn Umbru sem flytur. Hópinn skipa: Alexandra Kjeld, kontrabassi, langspil, söngur; Arngerður María Árnadóttir, keltnesk harpa, indverkst harmóníum, söngur; Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, fiðla, víóla, langspil, slagverk söngur; Lilja Dögg Gunnarsdóttir, söngur, írsk flauta. Gestaleikarar: Eggert Pálsson, slagverk; Matthías M.D. Hemstock, slagverk.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Úr íslensku tónlistarlífi

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Þættir

,