Úr íslensku tónlistarlífi

Úr íslensku tónlistarlífi

Tónlistin í þættinum:

Enn syngur vornóttin, lag eftir Mogens Schrader, ljóðið orti Tómas Guðmundsson, Gunnar Reynir Sveinsson útsetti. Mótettukórinn syngur, stjórandi er Stefan Sand Groves. Hjóðritunin var gerð á tónleikum á Sönghátíð í Hafnarborg 2025. Árni Möller annaðist upptöku.

Rent: fyrir strengjasveit eftir Leif Þórarinsson. Kammersveit Reykjavíkur leikur undir stjórn Bernharðs Wilkinssonar. Hljóðritaður í Víðistaðakirkju í janúar-febrúar árið 2001 og í Ými, Reykjavík í september 2001. Útgefið á plötunni Leitin eilífa, árið 2002.

Cycles (2002) eftir Gunnar Andreas Kristinsson. Joachim Kwetzinsky leikur á píanó. Útgefið á plötunni Patterns árið 2013.

Stillshot (2015) eftir Daníel Bjarnason. Strokkvartettinn Siggi leikur. Kvartettinn skipa Una Sveinbjarnardóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðluleikarar, Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleikari og Sigurður Bjarki Gunnarsson sellóleikari.

Hljóðritað í Masterkey Studios, á Seltjarnarnesi 10.-14. júní 2018. Útgefið á plötunni South of the circle 2019.

Svipir, lag eftir Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur og Ingibjörgu Fríðu Helgadóttur. Ljóðið orti Ingibjörg Haraldsdóttir. Flytjendur eru Ingibjargir (Ingibjörg Ýr og Ingibjörg Fríða). Upptökur fóru fram í Sundlauginni í maí 2020 og október 2021.

Útgefið á plötunni Konan í speglinum, 2023.

Hár þitt, lag eftir Sunnu Gunnlaugsdóttur við ljóð eftir Jón úr Vör. Flytendur eru Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari, Marína Ósk Þórólfsdóttir söngvari, Nicolas Louis Christian Moreaux, kontrabassaleikari og Scott McLemore trommuleikari. Upptaka fór fram 16. mars 2024 í Bergi Hljómahöll. Friðfinnur Sigurðsson tók upp, hljóðblandaði og masteraði. Pródúsent: Sunna Gunnlaugsdóttir. Útgefið á plötunni Ástin, bjartsýnin og andskotans blaðrið í fólkinu árið 2024.

Birt

19. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Úr íslensku tónlistarlífi

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Þættir

,