Tónlistin í þættinum:
Alia Fantasia eftir Nicola Matteis. Una Sveinbjarnardóttir leikur einleik á fiðlu. Hljóðritun gerð í Reykholtskirkju í janúar 2025. Útgefið á plötunni Ea fantasia árið 2026.
Húm, lag eftir Ingibjargir, ljóðið orti Ingibjörg Haraldsdóttir. Dúettinn Ingibjargir er skipaður þeim Ingibjörgu Fríðu Helgadóttur og Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur. Hér syngur Ingibjörg Fríða og Ingibjörg Ýr leikur á langspil. Upptökur fóru fram í Sundlauginni í maí 2020 og október 2021. Upptökur, hljóðblöndun, hljómjöfnun: Albert Finnbogason. Útgefið á plötunni Konan í speglinum árið 2023.
Haust, lag eftir Einar Bjart Egilsson sem leikur sjálfur á píanó. Hljóðritað í Maastricht. Útgefið á plötunni Heimkoma árið 2015.
Fjarri mér myrkvið eftir Eirík Stephensen. Á horn leika Asbjørn Bruun, Emil Friðfinnsson, Maximilian Riefellner og Stefán Jón Bernharðsson, en á básúnur leika David Bobroff, Jón Arnar Einarsson og Sigurður Þorbergsson. Stjórnandi er Högni Egilsson. Útgefið á plötunni Eirrek árið 2025.
Fyrsti þáttur, Allegro úr Klarinettukvintett í h-moll op. 115 (1891) eftir Johannes Brahms. Rúnar Óskarsson leikur á klarinettu ásamt Strokkvartettinum Sigga sem er svo skipaður: Una Sveinbjarnardóttir, fiðla; Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla ; Þórunn Ósk Marínósdóttir, víóla ; Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló.
Hljóðritað í Salnum í Kópavogi í nóvember 2020. Útgefið á plötunni Johannes Brahms: Complete Clarinet Works árið 2026.
Annar þáttur, Menuetto I (skiptist í Trio I og Trio II) úr verkinu Gran partita KV 361 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Blásarakveintett Reykjavíkur leikur. Útgefið á plötunni Gran partitta Kv 361 (370a) árið 1996.
Wings eftir Veigar Margeirsson. Höfundur stjórnar Stórsveit Reykjavíkur sem leikur.
Einleikarar: Jóel Pálsson, tenórsaxófónn ; Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar og Einar Valur Scheving, trommur. Útgefið á plötunni Five Birds 30. janúar 2026.