Tónlistin í þættinum:
Heyr það er unnusti minn, lag eftir Pál Ísólfsson, ljóðið er úr Ljóðaljóðum.
Varpaljóð á Hörpu, lag eftir Jórunni Viðar við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur.
Harpa Ósk Björnsdóttir, sópran syngur og Hrönn Þráinsdóttir leikur á píanó.
Hljóðritað á tónleikum í Salnum í Kópavogi, á Ári íslenska einsöngslagsins 2023, yfirskriftin var Mitt er þitt.
Tvö lög úr sönglagaflokknum Fjögur lög úr Ég er gull og gersemi eftir Atla Heimi Sveisson við ljóð eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Þið förumenn jarðar og Snert hörpu mína. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzosórpan syngur, með henni leika Francisco Javier Jáuregui og og Pétur Jónasson á gítara. Francisco Javier Jáuregui útsetti.
Fimm stuttir dúettar eftir Gylfa Garðarsson. Matthías Birgir Nardeau leikur á óbó og Brjánn Ingason á fagott. Verkið var samið 1985, Frumflutt það ár af Eydísi Franzdóttur (óbó) og Kristínu Mjöll Jakobsdóttur (fagott), en tónskáldið endurskoðaði verkið 2022, og það er sú útgáfa sem hér hljómar. Hljóðritunin kom út í febrúar 2023. Egill Eðvarðsson hljóðritaði.
Fyrsti þáttur, Grave-Doppio movimento úr Sónötu nr 2. op. 35 í b-moll eftir Frédéric Chopin. Ástríður Alda Sigurðardóttir leikur á píanó. Útgefið árið 2010.
Konsert fyrir 2 fiðlur í d-moll eftir Johann Sebastian Bach. Barokkbandið Brák flytur, einleikarar eru Laufey Jensdóttir og Elfa Rún Kristinsdóttir sem leika á fiðlur.
Hljóðritað 20. september 2020 á tónleikum Sígildra sunnudaga í Eldborg, Hörpu.
Friður bræður - lag eftir Kristján Tryggva Martinsson, spunnið út frá Flautusónötu BWV 1035 eftir Johann Sebastian Bach. Útgefið á plötunni 1035 í febrúar 2025. Kristján Tryggvi leikur á píanó.
Úr lýsingu með plötunni: Píanóleikarinn og tónskáldið Kristján Martinsson nálgast Flautusónötu BWV 1035 með opnum hug, sviptir hana upprunalegri rödd en gefur henni nýjan hljóm og nýja vídd.
Day dream eftir Billy Strayhorn og Duke Ellington. Kristjana Stefánsdóttir syngur með Útvarpsdjassbandinu í hljóðritun frá árinu 2024.
Leitin eftir Rósu Guðrúnu Sveinsdóttur. Flytjendur eru:
Rósa Guðrún Sveinsdóttir, barítonsaxófónn;
Daníel Helgason, gítar;
Birgir Steinn Theodórsson, kontrabassi;
Matthías Hemstock, slagverk;
Una Sveinbjarnardóttir, fiðla;
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla;
Ásta Kristín Pjetursdóttir, víóla;
Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló
Útgefið á plötunni Drangar, 2025.