Tónlistin í þættinum:
Fjarri mér myrkviði eftir Erík Stephensen. Flytjendur: Horn: Asbjørn Bruun, Emil Friðfinnsson, Maximilian Riefellner, Stefán Jón Bernharðsson ; Básúnur: David Bobroff, Jón Arnar Einarsson, Sigurður Þorbergsson. Stjórnandi: Högni Egilsson.
Útgefið 2025 á plötunni Eirrek.
Fantasy úr verkinu Fantasy and Clockwork (2022/2023) eftir Snorra Sigfús Birgisson. Snorri Sigfús leikur sjálfur á píanó.
Verkið tileinkar tónskáldið Hreini Friðfinnssyni (1943–2023).
Verkið var frumflutt í Amsterdam á áttræðisafmæli hans 19. febrúar 2023. Höfundur lék á píanóið.
Un sospiro úr Konsertetýðu nr.3 í Des-dúr eftir Franz Liszt. Halldór Haraldsson leikur á píanó. Hljóðritað í Sölvhóli, Lisaháskóla Íslands 18.- 21. júní 2014. Útgefið 2014 á plötunni Píanóhugleiðingar = Piano meditations.
Heilsa þér, Kjarval (2014) eftir Pál Guðmundsson frá Húsafelli. Textann samdi Páll Guðmundsson frá Hjálmsstöðum. Snorri Sigfús Birgisson útsetti. Flytjendur: Kammerkór Suðurlands; Hilmar Örn Agnarsson, stjórnandi; Páll Guðmundsson, flauta; Frank Aarnink, steinaspil (stoneharp). Hljóðritað á Listahátíð Reykjavíkur 2014.
Sónata fyrir selló og píanó eftir Claude Debussy.
Þættir verksins eru eftirfarandi:
Prologue
Sérénade
Finale
Hafliði Hallgrímsson leikur á selló og Robert Bottone á píanó.
Upptaka, Austurbæjarbíó, 5.01.1974
Tvær útsetningar eftir Jónas Ingimundarson:
Ei glóir æ á grænum lauki, þjóðlag sem er sungið við vísu eftir Sveinbjörn Egilsson. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran og Hallveig Rúnarsdóttir syngja hér tvísöng. Hrönn Þráinsdóttir leikur á píanó.
Ljúflingsljóð, eftir Ingunni Bjarnadóttur við þjóðvísu. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir syngur. Hrönn Þráinsdóttir leikur á píanó.
Útgefið á plötunni Með vorið í höndunum - sönglög og útsetningar, sem kom út árið 2022.
Scherzo con moto, þriðji þáttur af fjórum úr Sonatinu, op.71 nr. 3 í D-dúr eftir Mauro Giuliani. Svanur Davíð Vilbergsson leikur á gítar.