
Úr íslensku tónlistarlífi
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistin í þættinum:
Tvær stjörnur eftir Megas í útsetningu eftir Þórð Magnússon. Skólahljómsveit Kópavogs (C sveit) flytur, stjórnandi er Össur Geirsson. Útgefið á plötunni Skólahljómsveit Kópavogs 50 ára árið 2017.
Sechs lieder Op. 13 - ljóðaflokkur eftir Clöru Schumann.
Lögin heita:
Ich stand in dunklen Träumen - ljóð e. Heinrich Heine
Sie liebten sich beide - ljóð e. Heinrich Heine
Die Liebe sass als Nachtigall - ljóð e. Emanuel Geibel
Der Mond kommt still gegangen - ljóð e. Emanuel Geibel
Ich hab’ in deinem Auge - ljóð e. Friedrich Rückert
Die stille Lotusblume - ljóð e. Emanuel Geibel
Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran syngur og á píanó leikur Ástríður Alda Sigurðardóttir.
Hljóðritað á Ljóðatónleikum í Hannesarholti árið 2025. Yfirskrift tónleikanna var Draumsýn.
Píanósónata nr. 27 í e-moll, Op. 90 eftir Ludwig van Beethoven.
Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó.
Þættirnir eru: I. Mit Lebhaftigkeit und durchaus mit Empfindung und Ausdruck ; II. Nicht zu geschwind und sehr singbar vorgetragen
Útgefið á plötunni Opus 109, 2025.
O du mein holder Abendstern, aría úr óperunni Tannhäuser (1845) eftir Richard Wagner. Oddur Arnþór Jónsson baritón syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi er Leo Hussain. Hljóðritað á tónleikum sem báru yfirskriftina Uppáhalds aríur, í Eldborg, í Hörpu árið 22. september árið 2016.
Intermezzo eftir Pál Ísólfsson. Örn Magnússon leikur á píanó. Útgefið á plötunni Sprotar: íslensk píanótónlist 1991.
Annar þáttur, Gavotte úr verkinu Dansar úr svítunum eftir Johann Sebastian Bach í útsetningu eftir Philip Gordon. Blásarakvintett Reykjavíkur leikur. Kvintettinn skipa: Bernharður Wilkinsson, flauta; Daði Kolbeinsson, óbó; Einar Jóhannesson, klarinett; Josep Ognibene, horn; og Hafsteinn Guðmundsson, fagott.
Útgefið á plötunni The Cristofori Foundation Fauquier Family Shelter árið 1999.

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins