Úr íslensku tónlistarlífi

Ný og nýleg hljóðrit

Tónlistin í þættinum:

Kammerkórinn Huldur syngur tvö lög undir stjórn Hreiðars Inga Þorsteinssonar:

Heyrði ég í hamrinum, lag eftir Snorra Sigfús Birgisson, textinn er þjóðvísa/þula.

Bláir eru dalir þínir, lag eftir Huga Guðmundsson, ljóðið orti Hannes Pétursson.

Útgefið á plötunni Í fossgljúfri árið 2026.

Sinfónía nr. 3 eftir Arvo Pärt. Þættirnir eru:

I. Crotchet = 66

II. Minim = 54 - 56

III. Minim = 60

Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur undir stjórn Evu Ollikainen.

Útgefið á plötunni Complete Symphonies árið 2026.

Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á flygil, þrjú verk eftir György Kurtág úr Játékok, bókum 1 og 7:

Játékok - bók 1 : Twittering - Flygill

Játékok - bók 1 : Sleepily - Flygill

Játékok bók- 7 : Flowers We Are - Flygill

Útgefið á plötunni From Afar árið 2022.

Tríó Mýr leikur þrjú lög.

Tango eftir Ígor Stravinskíj

Saltarello eftir Vincenzo Galilei

Tarantello - ítalskt þjóðlag

Tríóið skipa Daniele Basini á gítar; Jón Þorsteinn Reynisson á bayan (harmoniku) og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir á selló. Hljóðritað af Hrafnkeli Sigurðssyni í Hljóðveri 12, RÚV, 27. mars 2023.

Birt

9. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Úr íslensku tónlistarlífi

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Þættir

,