Úr íslensku tónlistarlífi

Leyft öllum aldurshópum

Nýtt og nýlegt á tilvistarlegum nótum

Tónlistin í þættinum:

Fúga um mig og þig eftir Atla Ingólfsson. Samið yfir lag eftir Gunnar Þórðarson (Þú og ég) Eyþór Ingi Jónsson leikur á orgel. Útgefið á plötunni XV árið 2025.

Hik, eftir Arngerði Maríu Árnadóttur orgelleikara og Unu Sveinbjarnardóttur fiðluleikara, sem leika. Af plötunni Hik sem kom út í ágúst 2025.

Þrenning (Solastalgia) - III. þáttur eftir Svein Lúðvík Björnsson. Cauda collective leikur. Hópinn skipa: Sigrún Harðardóttir fiðluleikari, Þóra Margrét Sveinsdóttir víóluleikari og Þórdís Gerður Jónsdóttir sellóleikari. Útgefið á plötunni Solastalgia í mars 2026.

Emptiness eftir Ásgeir Ásgeirsson gítarleikara.

Flytjendur:

Ásgeir Ásgeirsson, gítar ; Hamid Khansari, oud, setar; Aryan Rezaee, slagverk; Bamdad Maleki, tombak slagverk;

Birgir Steinn Theodórsson, kontrabassi; Kjartan Valdemarsson, píanó; Marjan Mehraban, kanun; Shervin Mohajer, kamenche; Yashar Etaati, kamenche og qeychak.

Útgefið á plötunni Emotions í febrúar 2025.

Matti Kallio sá um hljóðblöndun.

Gömul veröld eftir Einar Bjart Egilsson píanóleikara. Hljóðritað og mastering: Louis van Eeten í Soundtrack Producitons í Maastricht Útgefið á plötunni Heimkoma 2015.

Heimurinn núna, lag og texti eftir Ólöfu Arnalds sem syngur og leikur og gítar. Útgefið á plötunni Spíra í desember árið 2025.

Framtíð mannkyns eftir Jón Hall Stefánsson, bæði lag og texti. Jón Hallur syngur og leikur á píanó. Með honum leika Hermann Stefánsson á rafbassa, kassagítar og rafgítar (slide); Ólafur Björn Ólafsson á trommur; Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir á klukkuspil. Útgefið á plötunni Mansöngvar, sem er tvöföld vinylplata og kom út í ágúst 2025.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Úr íslensku tónlistarlífi

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins

Þættir

,