Tónlistin í þættinum:
Svanurinn úr Karnivali dýranna eftir Camille Saint-Saëns. Hafliði Hallgrímsson leikur á selló, Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur á píanó. Hljóðritun gerð í Gamla bíói 12. júní 1983.
Impromtu í FÍs-dúr eftir Frédéric Chopin. Jórunn Viðar leikur einleik á píanó. Hljóðritað 1. júní 1958.
Söngur til mánans úr Rusölku (1901) eftir Antonin Dvorák. Þóra Einarsdóttir sópran syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi er Daníel Bjarnason.
Hljóðritun gerð á tónleikunum Klassíkin okkar í Eldborg, Hörpu árið 22017.
Recuerdos de la Alhambra eftir Francisco Tárrega. Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi er Robin Stapleton. Útgefið á plötunni Hvert örstutt spor, 2005.
Nú legg ég augun aftur (2013, úts. fyrir rödd og píanó 2023) eftir Finn Karlsson. Höfundur texta er Sveinbjörn Egilsson. Hildigunnur Einarsdóttir, mezzosópran syngur, Guðrún Dalía Salomonsdóttir leikur á píanó. Hljóðritað á tónleikunum Nýtt og nýrra á Myrkum músíkdögum 2025.
Fikta (2018) Jónas Ásgeir Ásgeirsson leikur á harmóníku.
Upptaka fór fram í tónleikasal Royal Danish Academy of Music, í Kaupmannahöfn 20.- 21.06. 2020, 16.01.2021 og 15.04. 2022. Útgefið á plötunni Fikta árið 2022
Fyrsti þáttur af fimm úr verkinu Neige éternelle - Fimm verk fyrir einleiksselló, eftir Veronique Vöku. Sæunn Þorsteinsdóttir leikur á selló.
Fjórði þáttur af fimm, Andante, arioso, úr Partítu eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Sif Margrét Tulinius leikur einleik á fiðlu.
Skafl eftir Óskar Þór Arngrímsson, einnig þekktur sem tónlistarmaðurinn Ótal. Óskar Þór leikur sjálfur á hljóðgervla. Útgefið á plötunni Gjóta 2026.
Annar þáttur af tveimur, Thema con variazioni - Andantino, úr Flautukvartetti í C-dúr K.Anh.171 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Kammersveit Reykjavíkur leikur. Útgefið á plötunni Kvöldstund með Mozart árið 2000.