
Úr íslensku tónlistarlífi
Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins
Tónlistin í þættinum:
Fyrsti kafli úr Sonatine fyrir flautu, selló og hörpu eftir Maurice Ravel. Melkorka Ólafsdóttir leikur á þverflautu, Steiney Sigurðardóttir á selló og Katie Buckley á hörpu. Georg Magnússon hljóðritaði fyrir Ríkisútvarpið á tónleikum sem báru yfirskriftina Fáheyrðir franskir draumar, og voru hluti af tónleikaröðinni Tíbrá árið 2020.
Sónata fyrir selló og píanó í d-moll op. 40 (1934) eftir Dmitríj Shostakovitsj.
Verkið er í fjórum þáttum:
1. Moderato
2. Moderato con moto
3. Largo
4. Allegretto
Bryndís Halla Gylfadóttir leikur á selló og Steinunn Birna Ragnarsdóttir á píanó.
Útgefið á geislaplötunni Bryndís Halla Gylfadóttir selló og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanó árið 1994.
Sex bagatellur op. 9 eftir Anton Webern.
Verkið er í sex þáttum:
1. Mässig
2. Leicht bewegt
3. Ziemlich fliessend
4. Sehr langsam
5. Äusserst langsam
6. Fliessend
Kordo kvartettinn leikur. Kordo kvartettinn er svo skipaður: Páll Palomares og Vera Panitch leika á fiðlur, Þórarinn Már Baldursson á víólu og Hrafnkell Orri Egilsson á selló. Georg Magnússon hljóðritaði fyrir Ríkisútvarpið á tónleikum í tónleikaröðinni Sígildum sunnudögum í Hörpu 2019.

Tónlistarhljóðrit frá ýmsum tímum úr safni útvarpsins