Rokkland

Færeyjar - Hafnarfjörður - Akranes

Í Rokklandi vikunnar verður komið við í Færeyjum - Hafnarfirði og Akranesi.

Við byrjum á að spjalla við færeysku tónlistarkonuna Gudrid Hansdottur frá Færeyjum. Hún bjó um tíma á Íslandi, hefur oft spilað á Iceland Airwaves, var að senda frá sér nýja plötu sem heitir Sýrublað (Hundasúra) og hún ætlar að spila á 9 tónleikum hringinn í kringum Íslandi dagana 20. - 29. október.

Við förum Þaðan til Hafnarfjarðar á gítarveislu Bjössa Thor sem fór fram í Ægi 220 helgina 2. og 3. október sl. Með Bjössa spiluðu t.d. Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir, Krummi Björgvins ofl auk Guðmundur Péturssonar sem skreyttur var með GULLNÖGLINNI sem veitt er árlega gítarleikara sem hefur sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf.

Þriðji viðkomustaðurinn er svo Akranes, en Jónas Björgvinsson er fæddur og alinn upp á Akranesi en býr á Langholstveginum í Reykjavík þar sem hann rekur hljodver.is í bílskúrnum sínum.

Jónas fór til Danmerkur og tók upp plötu þegar hann var rétt rúmlega tvítugur fyrir nokkuð mörgum árum, en svo gerði hann plötu númer 2 árið 2022. Nú er þriðja platan komin, platan Lífsins bók og það eru útgáfutónleikar í Tónabíó 22. október.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Rokkland

Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.

Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson

Þættir

,