Síðasti dagur strandveiða var í gær og veiðarnar verða stöðvaðar frá og með deginum í dag. Matvælaráðherra hafnaði beiðni Landssambands smábátaeigenda um að hækka aflaviðmið um 4.000 tonn en sambandið hefur skorað á ráðherra að endurskoða þá ákvörðun. Til að fara yfir þetta með okkur kom til okkar Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda.
Hópur ungra manna sást á dögunum, reyna að synda í Reynisfjöru en eins og alþjóð veit er um eitt hættulegasta flæðarmál landsins að ræða og fjölmargir ferðamenn hafa týnt þar lífi undanfarin ár. Við ræddum við Frímann Birgi Baldursson aðalvarðstjóra lögreglunnar á Suðurlandi sem þekkir vel til hættunnar sem býr í Reynisfjöru.
Úttekt heilbrigðiseftirlitsins bendir til þess að hreinlæti sé ábótavant hjá veitingastöðum í Mathöllum en aðstöðuleysi stendur veitingastöðunum helst fyrir þrifum. Mathallir hafa sprottið upp eins og gorkúlur um land allt en eru kúnnarnir ánægðir og er þetta veitingageirinn eins og hann gerist bestur? Við ræddum mathallir og íslenska matarmenningu við Þóri Erlingsson formann Klúbbs Matreiðslumeistara.
Svo heyrðum við í Magnúsi Hlyn Hreiðarssyni gleðifréttamanni um stemninguna á Suðurlandi.
Nú er hásumar og fólk í óðaönn að sinna viðhaldi. Nota veðrið. Það þarf að bera á pallinn og jafnvel bústaðinn. Við fengum til okkar Gylfi Már Ágústsson málarameistara eða Gylfa málara eins og hann er kallaður til að fara yfir hvað er best að nota og hvernig er best að gera hlutina.
Tónlist
VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON - Ég labbaði í bæinn.
MUGISON - Gúanó stelpan.
ALBATROSS - Já það má.
Bríet - Fimm.
GDRN - Parísarhjól.
HARRY STYLES - As It Was.
HIPSUMHAPS - Lsmlí (Lífið sem mig langar í).
Smokie hljómsveit - Don't play your rock 'n' roll to me.
Blondie - Heart Of Glass.
STING - Brand New Day.