Bless í bili!
Þessi síðasti þáttur fyrir sumarfrí er sannkölluð bókahátíð!
Hvað eiga Blái hnötturinn, Mamma klikk og Emil í Kattholti sameiginlegt? Jú, þetta eru allt sögur sem hafa verið sagðar bæði í bók og leikhúsi. Í þessum þætti heyrum við Andra Snæ lýsa mismunandi uppfærslum á Bláa hnettinum um allan heim! Bókaormurinn Hrannar Þór segir okkur frá bókunum Bannað að drepa, LÆK og Versta vika sögunnar.

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann