Bless í bili!
Þessi síðasti þáttur fyrir sumarfrí er sannkölluð bókahátíð!
Í þessum þætti af Hvað ertu að lesa? fjalla Embla og Karitas um bókina Sveindís Jane: Saga af stelpu í fótbolta. Fanney, sem spilar sem markvörður með Val og landsliðinu, kíkir við og talar um fótbolta. Auk þess kemur bókaormurinn Sara Bóel í heimsókn og talar um bókina um Sveidísi Jane, fótbolta og ýmsar aðrar íþróttir. Embla fer í útgáfuhóf í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, þar sem nemendur segja frá bókunum sínum.

Þættir um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar. Embla ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum.
Umsjón: Embla Bachmann