16:05
Víðsjá
Dans, Arfur aldanna, Tu jest za drogo, Snert á landslagi
Víðsjá

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.

Aðal­heiður Guðmunds­dótt­ir hlaut í gær viður­kenn­ingu Hagþenk­is fyr­ir framúrsk­ar­andi rit á ár­inu 2021. Viður­kenn­ing­una fær hún fyr­ir fyrstu tvö bind­in í verk­inu Arf­ur ald­anna sem Há­skóla­út­gáf­an gaf út, en bind­in tvö nefn­ast Hand­an hind­ar­fjalls og Norðveg­ur. Í ritinu Arfur aldanna setur Aðalheiður sér það metnaðarfulla markmið að fjalla á heildstæðan hátt um uppruna fornaldasagna, efnivið þeirra, útbreiðslu og bókmenntaleg einkenni. Við heyrum brot úr viðtali við Aðalheiði frá því fyrr í vetur í þætti dagsins.

Yfir litla á sem rennur til sjávar í Héðinsfirði fyrir norðan er að finna 5 óvenjulega steina, of reglulega, greinilega manngerða sem eru stiklur fyrir göngufólk til að komast þurrum fótum yfir vatnsfallið. Tinna Gunnarsdóttir vöruhönnuður ber ábyrgð á steinunum en þeir eru bæði hluti af yfirstandandi doktorsverkefni Tinnu og sýningu sem opnuð var um síðustu helgi í Hafnarborg í Hafnarfirði. Við höldum í Hafnarfjörð í dag og ræðum við Tinnu Gunnarsdóttur um landslag, fagurfræði og verkin hennar.

Selma Reynisdóttir heldur áfram að skoða það tímabil Íslandssögunnar þegar Íslendingum var gert erfitt fyrir að dansa, og tala sumir um dansbann. Í þessum þætti spjallar hún við þjóðfræðingin Atla Frey Hjaltason og spyr ?Af hverju bönnuðu kirkjan og yfirvöld Íslendingum að dansa??

En við byrjum í leikhúsinu í dag. Nína Hjálmarsdóttir fór í Borgarleikhúsið og sá sýninguna Tu jest za drogo, eða Úff hvað allt er dýrt hérna.

Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,